Olís

Vinur við veginn

Olís hefur undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á vinalegheit og undirstrikað þau með slagorðinu „vinur við veginn“. Hvert sem erindið er vill Olís gjarnan vera hinn hjálpsami vinur sem fólk getur leitað til á ferðum sínum. Í ímyndarauglýsingum er þessi tónn sleginn, en þar fylgjum við eftir tveimur hjálpsömum Olís-starfsmönnum sem létta undir með fólki í hversdagsamstri dagsins.

Leikstjórn var í höndum Lalla Jóns og gamla Hljómalagið „Er hann birtist“ var endurgert sérstaklega fyrir auglýsinguna, af Hjálmum og Mr. Zilla.

Afgreiðslukarl með rúðuþurrku.