Nærmynd af blautum, svörtum hesti

Íslenski hesturinn

Uppbygging vörumerkis

Íslenski hesturinn er sannkallað náttúruafl og tími til kominn að hann verði virkjaður um heim allan. PiparTBWA ásamt Íslandsstofu og hagsmunaaðilum lögðust í Disruption®-vinnu á haustmánuðum 2015 þar sem hefðir og venjur í útflutningi á íslenska hestinum voru djúpgreindar og í framhaldi hófst uppbygging vörumerkis fyrir markaðsátak á erlendum mörkuðum. Lagðar voru línur um hvernig styrkja mætti ímynd íslenska hestsins í vitund fólks á heimsvísu, byggja upp sterkt vörumerki og þar með auka verðmætasköpun í útflutningi á hestinum sem og á þeim vörum og þjónustu sem tengjast honum.

Ljósaskilti.
Bæklingar.
Grár hestur í haustlitum.