3 dósir af Gamaldags ís.

Emmessís

Gamaldags rjómaís – umbúðir

Við hönnuðum umbúðir fyrir nýja vöru frá Emmessís – Gamaldags rjómaís. Um er að ræða hágæðavöru með ekta íslenskum rjóma og færri innihaldsefnum en hefðbundinn ís. Bragðið minnir á heimagerða ísinn sem hafður var til hátíðabrigða í gamla daga og kallar fram dýrmætar minningar um ljúfar og góðar stundir.

Í hönnuninni lögðum við upp með að ná fram heimilislegri og huggulegri stemningu með tengingu við gamla daga, en samt með einfaldleikann að leiðarljósi.

Auglýsing.